|
|
12.10.2007 20:04:28 / PenGuin
Jább, árshátíðardagurinn var um daginn og það var mega stuð. Þemað niðri í Cösu kjallara var Super Mario og var það bara nokkuð flott. Uhmm....já, byrjum bara að tala umárshátíðardaginn... það gerðist ekkert gaman þarna vikuna áður.  Þetta byrjaði nú á því að ég vakanði klukkan 9:00 til að fara í klippingu hjá Nonna ofurtöffara(og núna með hatt!!) Þar fékk ég bara hipp og kúl klippingu. Fórum við síðan heim og beint í tölvuna að gera ekki neitt, meira svona að bíða eftir að árshátíðarskemtunin mundi byrja og eftir langa bið byrjaði hún. Skemmtiatriðin voru ekki skemmtilegt ef ég á að vera hreinskilinn og árs´hatíðar myndin var ömmó marrh  og maturinn var nú ekki beint mikið fagnaðarefni. Komst að því að mér finnst tartaðar kartöflur, eða hvað sem það hét, ekki gott. Eftir það tókum við leigubíl upp í "brh" (ójá, kominn með língóið á hreint) í fyrirpartý hjá bekkjarsystur minni. Var það bara mjög gaman. Það má líka nefna að ég hitti óvin minn úr leikskóla, hann Ágúst. En það var nú erfitt að tala við hann.... Ég held að hann var að fara fá flensu bráðum  En það sem stóð upp úr í partýinu voru kosningarnar. Daginn áður höfðum við nefnilega fengið blað með listum yfir titla og þar áttum við að skrifa niður nafnið á bekkjarfélaga okkar sem okkur fannst passa við titilinn. Og getiði nú hver vann "flottastur bekkjarins"..... Það var allavega ekki ég. En ég fékk titil og ég er stoltur af mér að hafa unnið hann. "Póseidon bekkjarins". Ég er víst svo rosalega sundlegur í útliti, ég tek því bara sem hrósi  Eftir það fékk ég far hjá pabba hans Baldvins  og komst að því að það eru ekki bara kúl 12 ára strákar sem hlusta á 50 cent. Pabbi hans blastaði Candyshop... jesss. Síðan komum við á Broadway og komumst inn án áreitis frá dyravörðum.(þeir voru miklu skárri en á Busaballinu, held ég) Bogomil Font og Raggi Bjarna trylltu lýðinn. Voru þeir bara fínir, þótt sumum fannst Raggi Bjarna eitthvað leiðinlegur en mér fannst hann bara fínn. Síðan fór ég nú bara heim í kringum 1... held ég, með Einari, Matta og Grími. Uhm.... síðan hefur nú ekki mikið gerst síðan. Ég fór í enn eitt stafsetningaprófið og gekk það vel, fékk aðeins eina villu, og það vara fyrir síðasta orðið í öllum textanum :'( Það var orðið "Viðurstyggð", ég skrifaði það hárrétt, en honum fannst vera of mikið bil á milli "Viður" og "Styggð". Jú heyrðu. Hljómsveitin með Finni, Magga og Sigga var að bjóða nýum meðlimi í bandið. Hann heitir Ingvar og er allt allt of góður á gítar. Við höfum verið með eina æfingu og var hún hjá honum. Hann á of mikið af græjum gaurinn. Trommusett, nokkra stóóra magnara, bassa og hljómborð og fullt af dóti. hmmmm.... og jú, hérna er mjöööög stór frétt. Við áttum að velja okkur kjörbók í íslensku og halda fyrirlestur um hana. Ég valdi bókina "Þriðja táknið" og viti menn, mér fannst bara gaman að lesa. Þá er þetta held ég fyrsta skáldsagan á íslensku sem ég klára, fyrir utan "Þegar Óskar varð æfur". Neiii, hún er meira að segja ekki íslensk. Heyrðu, ég ætla bara að hætta að tala áður en ég fer að bulla eitthvað meira.........
»
10.10.2007 22:46:39 / PenGuin
Nei.......
»
10.09.2007 17:22:41 / PenGuin
Einhverjir forvitnir einstaklingar vildu vita hverjir kenndu mér og svoleiðis.
Íslenska: Arnbjörn Jóhannesson
Stærðfræði: Steinþór D. Kristjánsson
Þýska : Maja Loebell
Enska :Laufey Arnardóttir
Saga og umsjónarkennari : Hróbjartur Örn Guðmundsson (já, það var rétt hjá þér Sveinbjörn, bíllinn hans er kúl)
Jarðfræði : Guðbjartur Kristófersson
Íþróttir: Bjarni Stefán Konráðsson
Danska: Þyrí koppur... eða einhvað þannig man ekki fleiri, eiginlega allir þessir kennarar er mjög fínir 
Ég er semsagt í Jarðfræðistofunni (E 1.01) í Elísarbetarhúsi. Ég er búinn að taka einhver stafsetningarpróf, fekk -1 í öðru  en 8 í næst, ég fattaði nefnilega að það er betra að læra undir þessi próf  Síðan var ég í Stærðfræðikönnun í dag, gat ekki klárað hana alla á 40 mín, en það voru mjöööög fáir í beknum sem gátu klárað. jæja... og jáááá, ég og FInnur erum eiginlega byrjaðir í nýrri hljómsveit, með Sigga (Siggi Elvu sonur  ) og Magga, vini og/eða frænda hans..það er bara mega stuð.... jæja Peace out
»
24.08.2007 23:40:35 / PenGuin
já, roselga frumlegt nafn, en já. "Einhverjum" fannst greinilega mynbandið fyndið  í gær fór ég á skólasetningu MR, rosa stuð og svona. Þá komst ég að því að dönsku kennarinn minn er víst ekkert svo vinsæll, hún heitir Þuríður, eða einhvað þannig. Í dag fór ég semsagt í minn fyrsta skóladag í MR. það vara alveg fínt, bara ekki vanur að sitja stanlaust í3 tíma í sömu stofunni, en það var nú allt í lagi, því félagsskapurinn er fínn, sit hjá Símon, Gígju, Heimi og Þengli, magnað nafn. Þessar sögusagnir um að MR sé mikið fyrir próf og svoleiðisheit, þær eru sannar. stærðfræði próf aðra hverja viku, dönskupróf einu sinni í mánuði og svona.. Það er náttúrulega aðeins of mikið. En síðan fer tónlistarskólinn að byrja í næstu viku. Fyrir þá se vissu það ekki, þá er ég kominn í tónlistarskólann í Reykjavík. Síðan að lokum bið ég um "Vancouverískt" comment hér fyrir neðan, og ef Baldvin Kári les þetta þá væri ég líka alveg til í "new york-ískt "comment
»
28.07.2007 23:47:48 / PenGuin
já, ég er búinn að gera margt undanfarið, farið í Hnaus, UMFÁ 3
flokkur vann 2 leiki og gerði eitt jafntefli, borðaðii góða samloku
og margt fleira. aðal ástæðan að ég er að blogga er út af þessu
video-i, ég bókstaflega grét úr hlátri yfir því, ekki spurja mig
afhverju
»
08.07.2007 16:40:41 / PenGuin
já, ég er kominn heim og vel brúnn  en já ætli ég þarf ekki að
vera með einhverja svona ferðsögu.
Við fórum klukkan 2 í loftið og lentum í kringum 9 að staðartíma.
Komum síðan að hótelinu um 11 leitið. ÞAr fórum við á ítalskan stað
og fengum "unaðslegt" lasagna  Síðan fórum við upp í herbergi, ég
og Finnur vorum Einir í herbergi sem var á hæðinni fyrir neða
foreldra okkar  síðan fórum við bara að lúlla.
Mánudagur-Sunnudagur
Maður byrjaði nú oftast á því á vakna, fór síðan niður og fékk sér
morgunmat. Eftir mikla máltíð fór maður upp og fór að smyrja sig.
Eftir það fór maður að bera á sig sólarolíu. Síðan var leiðinni
haldið í sundlaugargarðinn þar sem við fórum í skemmtilega
boltaleikinn okkar. Í kringum 2 leitið var farið að borða
hádegismat, við fórum bara á hótel staðinn þar sem Carlos vinur
okkar var en síðan fórum við stundum á stað aðeins lengra í burta
sem hét Don Giovanni.Síðan fór maður annaðhvort í sundlaugargarðinn
eða ströndina. Eftir það fórum við að borða kvöldmat og síðan var
bara gert eitthvað eftir hann, t.d. að sofa
svona var þetta nú alla daga, nema einn dag skelltum við okkur
feðgarnir (ég og pabbi, Finnur og Svenni) á jet-ski, það var nú
bara mega stuð  en heyrðu, ég nenni ekki að skrifa meira því ég
er að fara að horfa á alveg dásamlegan tennisleik sem er búinn að
standa í 3 klukkutíma eða einhvað þannig .
bæjó
»
23.06.2007 17:21:21 / PenGuin
já, ég nú baust við að fleiri mundu óska mér til hamingju,hmmm.....
en já, um daginn var 17 júní eins og allir ættu að vita, og viti
menn. C-mon(Símon) var beðin um að spila  við spiluðum 2
frumsamin lög eftir mig  og það heppnaðist mjög vel  Ég rakst
síðan á dálítið skemmtilegt á álftanes.is, þar stóð þetta:

Hljómsveitin C-mon, var meðal þeirra sem skemmtu
Álftnesingum á þjóðhátíðardaginn en hún er skipuð
nokkrum ungum tónlistarmönnum frá Álftanesi.
jahá, en bíddu... hverjir eru á myndinni, bahhh.... einhverjir
acid gaurar, ussss. En já síðan fann ég myndir af okkur spila sem
félagsmiðstoðin tók af okkur
já, þetta var mega gaman. En síðastliðnar 2 vikur hef ég unnið á
leikjanámskeiði, eða réttarasagt ævintýra og útivistar námskeiði.
Það er nú bara fínt, eða reyndar er það stundum fínt, en þetta er
ótrúlega þreytandi vinna. Síðasta fimmtudag fóru krakkarnir á
hestbak hjá Íshestum þar sem einhver reiddi þau. VIð komum með og
ætluðum bara að fylgjast með, en þá var okkur boðið í klukkutíma
reiðtúr. Við fórum auðvitað í það, settum á okkur alveg æðislega
sexý hjálma og fundum hesta. Minn hét Sleikjó  hann var nú fínn
til að byrja með, en það leið ekki á löngu fyrr en hann fór að
stoppa á miðri leið og fór að borða, ama hvað ég sparkaði fast þá
haggaðist hann ekki. En að lokum tókst það. Þannig að minn hestur
var ansi duglegur í að stoppa aðra hesta. Við áið vorum nokkuð mörg
í þessum reiðtúr og riðum í einni línu. Við og við áttum við að
hlaupa. Allir hestarnir hlupu eða "skokkuðu" fínlega nem minn
hestur. Hann stóð eftir og borðaði runna. Þegar við vorum kominn
til baka eftir þennan túr fórum við öll út, þá föttuðum við að
Finnur var eftir, þannig að ég hljóp inn í búningsklefann til að ná
í hann. Þegar ég opnaði hurðina stóð þar einhverju fullorðinn
Þjóðverji. Hann leit undarlega á mig, síðan benti hann á mig og hló
svakalega, og með því fylgdi einhver þýsk orð  en síðan sagði
hann "He was great, hahaha" það var örugglega engin kaldhæðni í
þessu hjá honum. mÉr leið eins og Loppu, heimskur en auðvitað
fallegur  en já, hef nú ekki mikið annað að segja nem að við erum
að fara til Lanzarote á morgun  Einar kallinn verður heima að
passa húsið
Bæjó
»
16.06.2007 00:49:38 / PenGuin
»
18.05.2007 22:03:09 / PenGuin
Já, meðan ég lá uppí sófa áðan horfði ég á Survivor, seríu billjón.
En já, þá var maður sem hét yao man eða einhvað þannig, en hann
samdi við annann gaur sem hét Dreamz(jee, megasvalt með Z) en já
samningurinn var að yao gaf honum einhver gígantískan bíl bara ef
hinn gaurinn mundi gefa honum friðhelgi í 4 manna úrslitum. Viti
menn, Dreamz vann keppnina í4 mann úrslitum en hann sveik yao og
stal bílnum(svona í grófum dráttum) og þessi Dreamz gerði þetta til
að eiga séns á milljón, já btw hann vann hana ekki  En þá fór ég
að hugsa, vá hvað fólk gerir mikið fyrir peninga. Að stela bíl til
að eiga séns á milljón, uss það er nú ekkert sniðugt. En já þá fór
ég nú að taka eftir því að mestallt í samfélaginu okkar snýst um að
eiga peninga. Eins og með stærðfræðidæmi, langt niður í 1 bekk.
Afhverju þarf alltaf verið að tala um, "palli keypti " fyrir svona
mikið og "hvað á hann mikið eftir" afhverju getur fólk bara ekki
notað dýr eða einhvað, mun skemmtilegra. " Mörgæs er með 5000
fjaðrir( veit ekki hvort þetta eru nokkuð fjaðrir  ) á sér og
missir 2000, hvað á hún mikið eftir" svona, þetta væri muuun
skemmtilegra  en já, þetta er nú bara smá pæling hjá mér að fólk
heldur að ef þú átt ekki svona mikinn pening þá deyrðu. nei kannski
ekki alveg svo gróft, en samt oft of nálægt mörkunum.
»
17.05.2007 18:37:49 / PenGuin
Já, Ég er búinn með þessi ljótu samræmdu próf, en mér tókst að
úlnliðsbrjóta mig og veikjast þegar prófin voru hálfnuð  en ég
held nú að mér gekk bara vel og eftir prófin átti að fara í
einhverja svaka ferð. Farð í rafting, skotið dúfur(leirdúfur)  og
klettasig, en neiii ég þurfti að vera veikur og komst ekki :'( En
það var nú allt í lagi, ég skemmti méer konnglega hérna. fór í
tölvuna, spilaði á gítarinn, horfði á loppu og þá er það komið. En
ég er nú ekki lengur veikur  Um daginn unnu nú MAnchester
deildina, gaman af því.Í Á á mánudaginn spilaði "Símon" aftur, gekk
mun betur en á árshátíðinni, en við spiluðum meðal annars lag eftir
mig  en við erum strax búnir að reka einn úr hljómsveitinni, hann
fór heim 1 mín fyrir tónleika... var einhvað stressaður og með
vesen  En já, í gær kom FInnur hingað og við grilluðum bestu
hamborgara í geimi  En ég var hérna að skoða gamlar færslur og
þar fann ég þetta
meistarverk.... enþá jafn fyndið
»
29.04.2007 16:18:01 / PenGuin
Nei, ég er ekki búinn að sjá þessa mynd en hún á víst að vera
skelfileg. Ég fann hérna klippu úr henni þar sem þeir eiga að vera
tala íslensku..... HAHAHA, einhver gaur var að segja að leikararnir
eyddi mörgum tímum í að ná upp hreimnum... það sést nú hérna...
HAHAHAHA
»
17.04.2007 21:53:03 / PenGuin
»
15.04.2007 22:40:07 / PenGuin
Já, þetta er nú ekki merkilega færsla, ég var bara að rekast á
lagið Africa með TOTO....Einar þetta er fyrir þig
»
14.04.2007 22:40:06 / PenGuin
Já, þeta eru mínútu langir þættir á youtube.com hérna eru nokkrir
Bubble Gum
Playing Tag
From Above
Já, Þetta er einfalt og fyndið, en já síðan rakts ég líka á annað
skemmtilegt video af ferðalagi Incubus hér á Íslandi, Hér er það en já
annars hef ég nú ekkert að segja sko........
»
09.04.2007 18:52:19 / PenGuin
Já, þetta er nafn á lagi sem er algjör snilld, hér er myndband af
þeim á tónleikum, ahaahah, sjáið söngvarann. Maður er
náttúrulega búinn að pikka upp aðal stefið í laginu en það er
ekki möguleika að ná þessum sólóum hjá gaurnum.  En já, eftir
miklar pælingar um karate kid fann ég enda bardaga atriðið í
karate kid 2 hér er það, horfið
á 4:45 ahahahahaha!!! þetta hlýtur að hafa verið vont 
En annars segji ég nú bara allt fínt...var að klára ritgerð á
mettíma um Engla Alheimsins. Síðan byrjar bara skólinn aftur á
morgun....usss, stutt frí. En þá eru bara 15 skóladagar þangað til
samræmduprófin koma  veit ekki hvort ég hlakka til eða ekki, er
auðvitað stressaður en líka spenntur fyrir að klára þau  En já
hef nú ekkert annað að segja nema að ég tapaði í keilu fyrir Dísu
en það er bara því hún er á lyfjum
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|